Við frænkur höfum ákveðið að gefa trillusíðunni líf á
ný
Þannig að þeir fjóru sem hafa verið duglegir að skoða hana geti
séð eitthvað nýtt og spennandi, enda afskaplega spennandi
manneskjur hér á ferð!!
Af mér er allt gott að frétta, var að klára prófin.
Verð að segja að sálfræðinámið kom mér verulega á óvart, það er
alveg ótrúlega krefjandi. Þetta er án efa erfiðasta vinna sem ég
hef unnið, ef svo má segja og hef ég nú prufað margt
Sumarið komið og ég er með bullandi fiðrildi í maganum.
Alltaf svo spennandi í byrjun sumars.
Ég verð að vinna í Reykjadal og hlakka mikið til. Vaktin mín
lofar góðu þannig það verður mikið húllumhæ og fjör.
Hrafnhildur ætlar að dvelja stutt á klakanum í
sumar
En við reynum að nýta tímann vel.
Ég ætla bara að hafa þetta stutt í bili, veðrið er svo gott að
ég bara verð að skella mér í sund
Hafið það rosalega gott
Knúsukveðja til Hrafnhildar enda er þessi færsla tileinkuð henni
og kveðja til Huldu líka sem er að sjoppast í góða veðrinu skinnið
litla...
Sumarkveðja Herdís